Í “sóknarmarki með allan fisk á markað” fær þjóðin aukinn fisk því við ætlum ekki að láta segja okkur lengur að það taki meira en 30 ár að rækta upp 5 til 10 ára gamlann fisk. (Búin að tapa 2500 milljörðum á töpuðum útflutningi síðustu 30 ár vegna aðgerða líú).

Þegar við erum að fiska segjum bara 50% meiri fisk en við gerum í dag og tökum fast gjald af hverju kg á markað verður til sjóður sem tekur allan kostnað af veiðum og vinnslu og skilar á hverju ári auknum tekjum í sameiginlegann sjóð sem Samfylkingin fær ekki að koma nálægt. Því meira sem við veiðum því meiri tekjur til þjóðarinnar.

Skipum verður fjölgað (25 togurum og öðru eins af bátum ? til að byrja með) og verður leyfum fyrir þau úthlutað til alls óskyldra aðila (raun nýliðun) sem bjóða í veiðileyfin og verða að skila þeim fari þeir á hausinn.

Með þessum aukna skipafjölda, frelsi til handfæraveiða og allan fisk á markað munu íbúar í sjávarbyggðum hringinn í kringum landið geta haslað sér aftur völl í sjávarútvegi og keppt við stórútgerðirnar um fiskinn og markaðina. Þetta mun eins og fyrir kvótann skapa stór aukið flæði fjár um hendur fólks og fyrirtækja í sjávarútvegi og í hliðargreinum sem mun ekki eingöngu skila sér í hærra útsvari og sköttum heldur líka í lækkaðri skattaprósentu sem mun auka umsvif enn meira í þjóðfélaginu.

Við þennan aukna útflutning mun gengið hækka og kaupmáttur aukast enn frekar í öllu landinu líka hjá lífeyrisþegum. Allt mun þetta leggjast á eitt að stór auka velferð á Íslandi.