Árin milli 1955 -60 fóru þorskveiðar tvisvar yfir 500.000 tonn, og aldrei undir 400.000 tonn. 1955, 538 þús. og 1958, 509 þús.Lægst 1957, 452 þús. tonn. Síðan kvótakerfið kom til sögunnar hefur þorskveiði hæst farið í 392 þúsund tonn árið 1987.

Síðan hefur aflinn farið minnkandi og eftir 1992 hefur aflinn ekki farið yfir 300 þúsund tonn. Aldamótaárið er landað 236 þús. tonnum og árið eftir 235 þúsund tonnum. 2007 er aflinn 170.000 tonn. Árið 2014 var landað 239 þúsund tonnum.

Aldeilis góður árangur það.

Þó fullyrða sjómenn að nóg sé af fiski um allan sjó. Bátar liggja í höfnum víða vegna þess að það er ekki til kvóti fyrir meðafla eða kvóti ófáanlegur. Mikið hvað þetta er góð fiskveiðistjórnun.

Sögur af brottkasti eru yfirgengilegar, en þær eru ekki sagðar nema undir fjögur augu og helst ekki nema að augun séu þrjú. Því að ef upp kemst þá verður viðkomandi atvinnulaus, og ekki bara hjá þeirri útgerð sem hann var hjá, heldur á sá á hættu að fá hvergi pláss.

Miðin eru illa nýtt þar sem vertíðarfloti er nánast ekki lengur til. Sjávarplássin eru hvert af öðru nánast að leggjast í eyði vegna þessara aðstæðna, sem eru manngerðar og öndverðar við alla skynsemi. Síðasta ár sem aflinn fer yfir 300 þúsund tonn er 1991 en þá var aflinn 309 þúsund tonn.

Tíu árum áður var aflinn 469 þúsund tonn, var það síðasta árið sem aflinn nær 400 þúsund tonnum.

Þó breytt sé um aðferð við stjórn fiskveiða er ekki þar með sagt að veiðar skuli vera stjórnlausar. Heldur verður, ef gæta skal að þjóðarhag, að miða fiskveiðar við að sem mestur ávinningur verði fyrir þjóðina og samfélagið. Hámarka afrakstur fiskistofnanna og skila til samfélagsins ágóðanum. Hann getur verið í formi hærri skatta vegna aukinna tekna fleiri af fiskveiðum.

Vegna þess sem að ofan er ritað er auðséð að það verður að skoða þá fiskveiðistjórnun sem hefur reynst eins illa og raun ber vitni að hugsa allt upp á nýtt, og ekki síst fiskirannsóknir.

Fróðlegt væri ef fiskifræðingar Hafrannsóknarstofnunar hafa einhver svör við þeirri spurning, hvort aukin loðnuveiði hafi einhver áhrif á stofnstærð þorsks?

Það vantar að minnsta kosti 100 þúsund ton af þorski á ári að meðaltali síðustu 25 til 30 ár. Á núvirði eru það talsverðir fjármunir. Ég ætla ekki að reikna það út hér, þó ég hafi gert það annarsstaðar, það bítur betur ef lesendur gera það sjálfir.

Á núvirði er t.d. hægt að nota 300 kr fyrir hvert kíló. 300.000 hvert tonn.

Síðan er nauðsynlegt að fólk geri sér grein fyrir mismun á ríkiseign og þjóðareign. En sá munur er afgerandi í þessu máli.

Kvótakerfið hefur tilhneigingu til að miða við jafnstöðuafla, það þýðir að viðmiðunin er þegar stofnarnir eru í lægð en ekki hámark nýtingar fiskistofnanna.

Nú er eðlilegt að spurt sé: Er kvótinn besta hagstjórnartækið?

[divider style=“solid“]

Sóknarhópurinn er hópur fólks sem lætur sér velferð þjóðfélagsins varða og vill nýja stjórnarskrá og afnám kvótakerfisins.  Við tökum sem hópur ekki afstöðu til hægri eða vinstri og tengjumst við sem hópur engum stjórnmálasamtökum.

Allir hugsandi men hljóta að sjá að núverandi fiskveiðistjórn er ónothæf.

Markmið Sóknarhópsins er eftirfarandi í stórum dráttum.
1. Stöðva framgang ,,Nýja kvótafrumvarpsins” líka litla makrílfrumvarpsins, það er einungis til að búa til fordæmi.
2. Ný stjórnarskrá byggð á tillögum Stjórnlagaráðs verði sett í lög.
3. Afnema kvótakerfið og taka í staðinn upp sóknarmark við stjórn fiskveiða með skilyrði um að allur afli fari á markað.

[divider style=“solid“]

Sóknarmarkið skal vera að íslenskri fyrirmynd.
Til að ná þessu fram mun hópurinn beita öllum tiltækum ráðum.
Grunn lýsing á sóknarmarki þar sem allir sitja við sama borð og mannréttindi eru virt.
Við hyggjum á fundarherferð um landið á næstu vikum, það verður nánar auglýst síðar.

Það er augljóst að núverandi fiskveiðistjórnun hefur ekki skilað tilætluðum árangri,

þeir sem sækja fiskinn eru almennt sammála um að það megi veiða meira.
Hagnaður auðlindarinnar dreifist um samfélagið en fari ekki vasa fárra.

Allan fisk á Markað.

Sóknarhópurinn er bæði á soknarhopurinn.is og á Fésbók.

Pétur Guðmundsson
Félagi í Sóknarhópnum